Sykur pabbi minn!!!!!Gylfi Þór Þórsson

Spurt er........hvert skal haldið í sumar?


A) Danmörk kostar 30.000
B) Indonesía kostar 126.000
C) Bandaríkin Kostar Frítt!

verð að fara til DK að hitta hlyn....og verð að fara til usa að heimsækja eric....
hver veit nema ég láti þetta allt rætast bara:)

Er að tala við hlyn nuna......hann er algert met...erum að pæla í reunion pizza 2000:) hehe....það væri geðveikt

svo er það auðvitað húsó reunion sem verður geðveikt...nema ég þarf að vera í tjaldi...á einhver tjald til að lána mér...ég sef ekki undir tré!!! þó það væri vafalaust fyndi ða sjá það.......einsog gamall róni ;)

Er að horfa á jackson tónleika......úff...ég sakna hans...einsog hann var....áður en hann varð hvít kona!

Flott hjá Atvinnu Bilstjórum að mynda umferðateppu...ég er alveg með þeim í þessu...óþarfi samt að gera það þegar ég er að keyra:)..muniði það bara næst!

fór í klippingu í dag.....mömmu þótti þetta komið gott og fjárfesti í nýrri kollu handa mér...ég er ekki frá því að ég líti út einsog George Clooney.......nema ekki svona gamall:) hehe.....en það kemur...

mig langar á grímball...en bara ef ég gæti mætt sem barbapabbi...það væri alveg geðveikt hehe snilld:)

mig langar líka í kalhúa vindil...en það er víst hætt að framleiða þá...því miður!!!

jæja....ættli það sé ekki best að fara að sofa...það er stór dagur á morgun...Mr:H er að koma í vinnuna aftur Mr:H (Hannes) eftir langt frí...ættli hann sé ekki búinn að gleyma þessu hehe:)

                                  Þangað til næst......ekki skíta í skóinn minn!

p,s.....þessi könnun er að verða gömul:) en ég er ánægður með það að það er bara einn sem var ekki með mér í húsó......engina sem vissi ekki að ég væri í húsó....10 sem voru með mér í húsó;) og 2 sem sögðu að ég væri sætur:) það er glæsilegt:) hehe.......ný könnun mun koma bráðlega...ættla að leyfa fólki ða kjósa að ég sé sætur aðeins lengur;)

                                    Stjörnu-kisi kveður að sinni

HUND!!! þú færð engan HELLVÍTIS hund......VIIIIÐÐÐBJÓÐURINN ÞINN!!!Gylfi Þór Þórsson

Hvað get ég sagt.......nú þarf maður að fara að fá sér aukavinnu bara til að geta borgað þessa mánaðarlegu reikninga.........

fara í bankann.....taka húsnæðislán til að geta borgað bílalánið...en hey..þú færð ekki húsnæðislánið þannig að bíllinn er tekinn af þér....heppni:)

helgin var góð...mikið brosað í vinnuni...(veit það hljómar ótrúlega hehe)
Dýrin í hálsaskogi mættu á svæðið...ég var Héraðstubbur bakari...toppa var amma mús og berglind var lilli klifurmús og jón þór var mikki refur hehe snilld...við vorum einsog fávitar í vinnuni hehe:)

Var að horfa á pink panther...sem var góður..á sínum tíma...nú eru flest allir búnir að stæla þessa brandara alveg í döðlu þannig að þeir voru bara ekkert fyndnir nuna:)

voru að koma nýjar upplísingar um húsó hittinginn.......kannski þarf Kisinn að gista í tjaldi:) sem er auðvitað bara glaaaatað mál :) hehe........

hvað get ég ruglað meira?  mig langar að fara að fara í bíó....en ég held að það sé ekkert sem heillar mig í bíó....
þá gæti maður tekið sér spólu(dvd) en það er ekkert þar heldur.....voðalega lifi ég erfiðu lífi hehe:)

það er alltaf frekar kalt hérna í íbúðinni minni...veit ekki alveg afhverju....held að það sé vegna þess að það vantar gluggana í íbúðina:) DAAAAAJÓK!

er að fara á æfingu nuna......úff hvað ég er að fíla körfubolta....ættla bara rétt að vona að körfuboltaguðinn vaki yfir mér.....eini guðinn sem ég trúi á og sá eini sem ég hef séð!!!! þannig að það er ekki vitlaust að trúa á hann.......og sá SÚ!!! sem segir að jordan er ekki guð!!! fær bolta í trínið...nema mamma,.....auðvitað....en hún myndi aldrei setja úta hann;)

ég þarf að fara að endurnýja fataskápinn minn...kaupa mér skyrtur og svona...jakka..´..það er allt að verða of lítið á mig...sem er ekki nógu gott...ég er einsog fífl þegar ég er komin í jakkafötin mín og skyrturnar........þarf helst að binda skyrturnar á mig svo þær poki ekki á mér...hehe...samt...hörku góð tilfining;)

                  Jæja......nú skil ég við ykkur þarsem ég fann ykkur........

                                                       Kisinn kveður kílóinn........

The Magic Man.....Gylfi Þór Þórsson

jæja....þá er kisinn búinn að spila sinn fyrsta leik með álftanesliðinu....Gísli (æðsti strumpur) gaf mér tækifæri til að sýna hvað ég gæti....ég auðvitað sýndi ekki neitt hehe....nei nei ég skoraði eina körfu og var með 100% hittni og enga villu...ekki margir sem geta státað af þeirri tölfræði í leiknum hehe;)

En ég var að vinna alla helgina..... sem var ágætt svosem...hellvítis hellingur að gera....þannig að hún leið hraðar....og svo á laugardagin fékk ég að vita að ég væri í liðinu og fólkið á aski hefur haldið að ég væri eitthvað vangef....nari en venjulega....ég blótaði lítið sem ekkert og var bara stilltur og prúður kettlingur:)
þetta gersamlega bjargaði helginni:) og satt best að segja....þó ég hefði ekkert fengið að spila....bara setið á bekknum, það hefðu verið nóg verðlaun fyrir mig....en ég fékk að fara inná og setti inn stig þannig að ég er bara alveg í skýjunum:)

en hvað um það.......er að fara á morgun að sjá myndina 10,000 bc...er búið að langa að sjá hana alveg frá því ég sá first úr henni.....og já ég hlakka bara mikið til:)

jæja...ég get ekki hugsað neitt nuna hehe:) ég er bara sáttur við þennan dag:) þannig að ég er að pæla í að segja þetta bara gott:)

                                                100% Kisinn....spilar bolta

Einn bjalla....tvær Bjöllur.....þrjár...oh..appelsína.....vann ekkert!!!Gylfi Þór Þórsson

Ættlaði að henda inn hérna einvherju smá bloggi svona rétt áður en ég fer að henda mér tómt bælið.....

strákarnir í Team álftanes voru að keppa í höllinni......með sýn yfirvara skegg...man þeir voru hot...en þeir töpuði á einhvern undraverðan hátt......

ekki meira um þann harmleik.....

ég er búinn að vera að gera ekki neitt þessa helgi og sattbest að segja...er það orðið smá þreytt:) ég verð að fara að gera eitthvað í fríinu mínu:) og stefni á það.... næsta frí verður tilgangsmikið frí hehe....ég ættla að gera eitthvað....

fór á HM kvenna í gær.....þær voru að spila í kringlunni.....allt stappað af konum þar.....að versla einsog engin væri morgundagurinn......:) ég elska þessar elskur....

Mig langaði að fara í bíó og sjá Semi-Pro með will Farell...Finnur sagði að ég ætti bara að sleppa þvi.....sem eg og gerði hehe.....

fékk sms á laugardagskvöldið...frekar skemmtilegt.....

"skakkt númer"

Vá ef þetta er ekki eitt mesta bail djamm sem ég hef farið á þá veit ég ekki hvað!!

"Ég"
já...það er ekki gott...aldrei gaman að lenda á bail djammi...hver ertu annars?


"skakkt númer"


Kata Kjáni


"Ég"

Æj kata Kjáni.....þetta er ekki gott....það er aldrei gott að það sé bailað á manni...en ég held samt að þú þekkir mig ekki neitt....

góð saga ha...manni hlítur að leiðast mjög mikið ef þetta stendur uppúr;)

                         jæja...ég ættla að fara að gera eitthvað annað enn að hanga í tölvunni.....kannski að kíkja í playstation hehe...djók;)

                                       Kisinn kveður með stýripinnan í lúkunum.......
P,S Mundu.....ef þú hugsar eitthvað kynferðislegt um stýripinnann í lúkunum þá hættir jesús að elska þig!!!







 

Týndur Köttur.....leitað er eftir eiganda....Gylfi Þór Þórsson

Ah.....Helgin mætt á staðinn....í öllu sýnu veldi.....og ég hef ekkert að gera:) hehe

Var að pæla í að gera eitthvað....vandinn er bara aðfinna það.....:)


Ég fór áðan og setti í þvottavél...ýtti á play....og vélin skundaði í gang...
Ég þarf að fara að vaska upp...það er orðið einsog í íraq þarna í vaskinum hjá mér.......
ég þarf að moppa yfir gólfið.....fara út með rusl......þetta er það sem ég þarf að gera.....´

Hér er listi yfir það sem ég ættla að gera.....

1).......
2)..........
3).......

þetta verður laaaaaangur dagur:)

Nýja myndin með Will Farrell er að koma út...og mig langar að sjá hana...en það er ekki útaf Will "fallen Angel" Farrell það er útaf Woody Harrellson og finnst mér hann einn skemmtilegasti leikari sem ég hef sé..ég veit ekkert afhverju.....

Hvað um það.....mig vantar sárlega nýja tölvu.....þessi er orðin eitthvað þreytt og pirruð....
tölvan hefur orðið sinn eigin vilja og ef henni henntar ekki eitthvað...þá er það ekki gert...ef ég reyni að þrísta á það.....skipa henni að gera það...þá fer hún bara í fýlu og frís!!!

Mig langar líka í ferðatölvu.....en ég verð að fara að fá mér nýja tölvubráðum....þessi hefur þraukað með mér í að verða hva...6 ár eða svo......og á hún allt gott skilið....nema hvað....að hún er hætt að virka almennilega....

svo langar mig líka í PS3.....en..það er erfitt að fá húsnæðislán í dag þannig að ég er ekkert að fara að kaupa mér þannig:) strax;)

jæja....er þetta ekki bara nokkuð gott.....það held ég allavegana.....

                                                                                            The End.

                                Alheims-Kisanum var Downlodað í morgun.....



Skrapp útí banka kem aftur........skrapp saman...kem aldrei aftur.....Gylfi Þór Þórsson

Bankalán eru einsog lítil börn.....þú þarft að hugsa um þetta...annars fer allt í rassgat....
þú þarft að vera ábyrgur...annars fer allt í rassgat......og þú verður að eiga pening fyrir þessu í hvert skipti.....og svo þegar lengra líður...þá vex það úr grasi...og dafnar...þangað til þú ræður ekkert við það:)


ekki að ég sé í ruglinu....bara svona.....segi svona:)

En hvað um það...ég er ífríi í dag:) hvað ættla ég að gera eruði að hugsa...tja..ég skal segja ykkur það......ég ættla á æfingu í kvöld...reyna einsog rjúpan við staurinn að standa mig vel...og svo ættla ég heim......og bjóða Finn í rómantískan nba körfubolta leik kl 2.....

þannig að' ekki trufla þá.....því þá erum við á fullu;)

vonandi að þessi leikur fari vel....áfram jazz...ég þoli ekki shaq!!!
Heyrði líka að Baldur eigi að lýsa leiknum sem er bara snilld...því það er engin annar sem getur gert þett aeins vel og hann....já...valtýr björn er tekin með!!!


En hvað um það.....ég er að pæla í að fara í kringlan og ath hvort það sé eitthvað sem freistar mín þar:) þó svo ég efist um það að sjálfsögðu....eða kannski intersport...lángt síðan ég hef farið þangað.....mig vantar (ekki) stuttbuxur nefnilega fyrir körfuna:)

úff hvað ég þarf að komast í klippingu.....ég myndi alveg gera hvað sem er fyrir klippingu nema ekki að borga meira en 3000 kall fyrir...hvað er að!!!! það er ekki einsog ég sé að byðja um gullsleigna lokka í hárið....og klipparinn má meirasegja eiga það sem hann tekur af.....

svo rétt áður en maður fer að versla í matinn þá þarf maður að fara og fá húsnæðislán sem maður fær ekki því bankinn á engan aur handa manni....

ég er sattur við að hafa ekki keypt mér íbúð þegar þessi blessuðu lán voru að koma..ég væri í svo miklum skít nuna að það væri bara skelfilegt.....:) þetta er nákvæmlega þaðsem mæður gera fyrir mann og hafa alltaf gert fyrir mann...hafa vit fyrir manni!!! 
           
                                            Kisinn sem fær greinilega ekki bílinn sinn aftur!!!!!
                                     Köttur útí mýri...setti á sig stírivexti og kom öllu í rugl!...

Kötturinn sem vissi ekki hvað var upp..og hvað var niður......Gylfi Þór Þórsson

jæja góðir lesendur...einsog þið hafið tekið eftir...þið sem lesið þetta blessaða blogg.....
að ég er búinn að vera nokkuð duglegur að blogga......sem í sjálfumsér er nokkuð gott........
nema hvað...að ég hef ekkert að segja.....:) og það verður engin breyting á því nuna.......


Hvað er að gerast með bílinn minn....fór í Heklu í dag...það er vika síðan ég fór með dótið í viðgerð...og hvað...ekkert að frétta...þannig að ég keyri um á nýjum golf...sem er auðvitað nokkuð gott:) og ég held....að ég sé búinn að prófa allan bílaflotan þeirra:) búinn að fara með bílinn í viðgerð 6 sinnum nuna...útaf sama hlutnum og hvað...ég fæ  hann alltaf  til baka einsog gamlan traktor...en ég er búinn að prófa jettuna..sem er fín...passat sem er geðveikur...golf sem er góður..og bjöllu sem er drasl:)  en af öllum þessum bílum myndi ég auðvitað kaupa mér passat...en hann kostar svo mikið að ég þyrfti að taka húsnæðislán fyrir honum...og það vita allir að þannig lán liggja ekki útum alla banka í dag:)

ég vona bara að þeir hjá heklu taki bílinn minn og kaupi hann af mér, yfirtaki bara lánið og þá get ég hætt þessu rugli sem búið er að vera í gangi...ég er að verða einsog Norm í staupastein....

svo er víst spáð geðveiku veðri á fimmt....það er spá snjókomu og 30 metrum á sek...hehe...sem þýðir að það verður geðveikt að gera hjá mér...fólk heldur að það muni aldrei komast útað borða aftur;)

Svo er helgarfrí framundan...það er alltaf gott...ég er að pæla í að gera ekki neitt hehe;) fara á körfuboltaæfingu...sýna þeim hvar davíð keypti ölið....eða..það er ef davíð mætir þá:) svo er víst æfing á morgn líka og ég var búinn að semja við hannes að fá að fara fyrr á mið til að komast á æfingu;) það verður bara snilld:) en.....hvað um það....ég vona bara að þetta hafi verið eitthvað til að lesa.....ég kem svo vonandi með einvherja góðar sögur um helgi eða rétt fyrir helgi;) en þangað til...ættlar kisi að leggja sig;)


                                                            Kötturinn tekur sóló á sjarmann.........

Sit ég hér...á bauna sekk......sit ég hér...í new orleans......Gylfi Þór Þórsson

hvað ég vildi óska að það væri satt......

Ég var að vinna um helgina....það gerðist ekkert þar.......nema hvað að hann Hannes.....köllum hann Mr: H var ekki að vinna.....hann var heima hjá veikri konu að sjá um heimilið:) þannig að það er allt í rúst þar....;) nei nei.........

og vegna þess að hann var ekki þar...þá tók ég hlaðborðið....sem hefur svosem alveg gerst áður...nema hvað......að ég var búinn að sofa í 2 tíma þá nótt....sem er auðvitað ekki góð hugmynd:) og ég var þreyttasti maður í heimi.......en sá dagur einsog allir aðrir slæmir eða góðir..tók enda:) hehe....

ég er enn í þessu átaki mínu sem gengur alveg vonum framar......ég er búinn að missa 25 kg...og langar ekkert í nammi:) (Ekki satt) en það er eitt vesen......ég er búinn að fá leið á því sem ég má borða :)........hehe....en ég ættla mér að missa svona 25 í viðbót:)

ég missti mín 25 á 3 mán.....og ættla mér að vera orðinn foxy flottur fyrir júlí;)

Hvað um það....mig langar í súkkulaði stikki.......mig dreymdi að ég væri að borða twix um dagin...úff...það var góður draumur maður...en ég vaknaði og var ánægður að ég var ennþá fallegur...en ekki feitur og ljótur hehehehe.......


Ég var á körfubolta æfingu áðan og þjálfarinn var að spyrja mig útí þetta......sagði honum að ég væri búinn að missa stóran part af mér á 3 mán og hann var bara mjög ánægður með það....og þá varð ég ótrúelga stoltur og ættla mér að halda því áfram.....;) þannig að....þegar þið sjáið mig...ekki spyrja mig hvort ég sé að missa mikið...þá veit ég að þið eruð bara að sleikja mig upp;) hehe nema þú mamma...þú heldur mér við efnið:)

Sá Gamla manninn í sjónvarpinu....glæsilegur einsog sonurinn.....:) ég veit núna afhverju ég er svona ótrúlega fallegur........ég á svo magnaða foreldra....;) (er ekki eitthvað gott í matin á morgun mamma:))

                                                                                                      The End


                                                                     Sykurlausi-Kisi kveður.......





Do You Know The Muffinn Man..........Gylfi Þór Þórsson



Ég er búinn að vera að baka Muffins í allan dag:) það var reyndar bara frekar gaman:)
en þarsem ég borða ekki sykur eða hveiti þá varð ég að horfa á staffið troða þessu í trýnið á sér og fitna og verða ljót!!!!

Fór með bílinn minn í verkstæði í á þriðjudagin síðasta...vona að þeir taki hann bara afmér...búinn að fara með hann 6 sinnum útaf sama hlutnum.....og þeir ná ekkert að gera við hann...alltaf einsog gamall traktor þegar ég fæ hann aftur......en fékk þennan fína Golf keyrðan 6 þúsund þannig að það er ágætt:) ættla að vona að þeir skipti bara við mig á sléttu hehe:) as if...það er víst ekkert gefins í þessum heimi okkar.....

Hvað um það....ég er fínn á nýja drekanum:)

Horfði á mynd í gær Sem heitir Gabríel og fjallar um Engilinn Gabríel......það er það eina sem ég náði við þessa mynd.....ef þið sjáið hana á video leigum......hlæjiði þá og bendið á hana......það er það eina sem hægt er að gera:)

Horfði líka á ghostbusters.....það er snilld....verð að fara að sjá númer 2 aftur líka hehe.....:)

Eftir 2 daga er ég búinn að vera sykurlaus í 3 mánuði:) og allt að ganga svona glimrandi vel:)

allt eitur farið....eða að fara úr líkamanum og ég bar að verða svona foxy hot stuff;)
Búinn að missa svona einn stóran smjörkassa eða svo....ættla me´r ekki að vinna hann á mig aftur takk fyrir það......

en ég veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira...það er vinnuhelgi hjá mér.....sem þýðir að ég er að vinna þessa helgi hehe;) en er alltaf búinn kl 22:00 þannig að ef ykkur langar að sjá mig....þá getiði bara drattast í heimsókn eftir það:)


en hvað um það...ég ættla ekki að segja meira hérna þó allt heimsins bull myndi flæða í gegnum hausinn á mér......jú ég myndi sjálfsagt láta eitthvað flakka.....en hey....ég er farinn að gera ekki neitt...kannski sofa....njee....efa það:) en þið hin sem þurfið að sofa....góða nótt.      
          
                                                            Stóri-Kisi Bakar Muffins..........

Ekkert að gerast.Gylfi Þór Þórsson

Jæja...þá er búið að þrífa alla íbúðina:)...skrapp í kaffi í dag með sigga...hitti þar ringu...hún var nýbúin að fara í klippingu...leit bara ljómandi vel ut.......

svo fór ég þaðan og beint til múttu....í mat...hammara...það var gott...:) það er alveg sama hvernig er litið á það þá jafnast ekkert á mat sem mamma gerir;)

svo fór ég heim.....og gerði ekkert...svona á maður að fara með föstudagana hehe....

er að horfa á simpsons og nba til skiptis nuna......

hvað um það....ég ættla að hætta þessu og fara bara að lúlla mér.....lúlla í sæta hausinn minn.....

                                                                  Köttur ítí mýri..setti á sig stýri úti er...bloggfærsla..

Aðalvalmynd

Leikur dagsins

Næsta bros...

Þarsem hlutirnir Gerast.....

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Kisi

  • Nafn: Gylfi Þór Þórsson
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Matreiðslu wannabe með meiru
  • Hjúskaparstaða: Giftur Perlu Stefánsdóttur II

Auglýsing

Könnun

Varstu með Gylfa í húsó?

Kötturinn segir:

Veriði góð við hvort annað...annars hættir Jesús að elska ykkur....

Klukkan